|
27.09.2008 08:27:50 / Kjallari
»
11.08.2008 23:15:18 / Kjallari
Framkvæmdastjórn Kjallarans ætlar að taka af skarið og afskrifa þessa síðu:
Kjallaramenn eru orðnir of stórir fyrir Netið. Tíminn við lyklaborðið fer núorðið í að skrifa mastersritgerðir, stefnur, reikninga og sögu Mæðrastyrksnefndar.
Lifi Kjallarinn, deyji málgagnið!
Að lokum legg ég til að Bloggheimar verði lagðir í eyði.
/eb
»
01.03.2008 08:17:57 / Krissi
1. miðnafnið þitt: 2. Aldur: 3. Single or Taken: 4. Uppáhalds bíómynd: 5. Uppáhalds lag: 6. Uppáhaldshljómsveit: 7. Dirty or Clean: 8. Tattoo eða göt: 9. Þekkjumst við persónulega? 10. Hver er tilgangurinn með lífinu? 11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum? 12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli? 13. Besta minningin þín um okkur? 14. Myndir þú gefa mér nýra? 15. Segðu eitthvað skrýtið um þig: 16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik? 17. Getum við hist og bakað köku? 18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega? 19. Talaru eða hefuru talað illa um mig? 20. Finnst þér ég góð manneskja? 21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið? 22. Finnst þér ég aðlaðandi? 23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari? 24. Í hverju sefuru? 25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla? 26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér? 27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera? 28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?
Fann
þetta á einhverri síðu þegar ég var blindfullur heima hjá mér og fannst
þetta sniðugt, endilega fyllið þetta út í comments eða hringið í mig og
segið mér frá því hvernig þið mynduð svara þessu, það væri vel þegið.
En þar sem það virðist vera að ég eigi að halda þessari síðu uppi þangað til Bjarnason kemur heim, þá verð ég að benda á eitt.
Ég
á ekki að þurfa að koma með eitthvað svona ógeðslega asnalegt blogg til
að ná athygli ykkar, og ef við rýnum aðeins í þetta, þá gætum við sagt
að þetta væri einhver athyglisbrestur hjá mér, en ég vill meina að
þetta sé alfarið ykkur að kenna. Ég á ekki að þurfa að útskýra
ástæðuna, þetta segir sig nokkuð sjálft.
En ef við höldum áfram með þenann lista hér að ofan, þá ætla ég að fylla þetta út fyrir ykkur og gefa ykkur hugmyndir.
1. miðnafnið þitt: Danger 2. Aldur: Næstum góður fyrir ríkið 3. Single or Taken: Jafn laus og endajaxl í boxara 4. Uppáhalds bíómynd: ClownPorn.avi og Hot Rod. En svona án djóks yrði ég að segja History of violence. 5. Uppáhalds lag: Þessa stundina hlusta ég mest á lög í sama gæðaflokki og Haffi Haff - Wiggle Wiggle song 6. Uppáhaldshljómsveit: Allar sem eru þess verðugar að vera á playlistanum mínum í winamp 7. Dirty or Clean: Clean, ef verið er að tala um sakaskrá. Dirty ef verið er að tala um sokka. 8. Tattoo eða göt: Er með fucking klikkað "my humps" tattoo á hendinni, og svo er ég með nafla. 9. Þekkjumst við persónulega? Það fer eftir því hvort þú ætlir að gefa mér peninga eður ey. 10. Hver er tilgangurinn með lífinu? Að finna sér lífsföruneyta og athuga hvort maður þoli viðkomandi það sem eftir er ferðarinnar. 11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum? Ég myndi baka þig í slagsmálum. 12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli? Ef þú gætir unnið notorious í sjómann, þá myndi ég gera það. 13. Besta minningin þín um okkur? Þegar við drápumst á klósettinu í kjallaranum, ég og þú. 14. Myndir þú gefa mér nýra? Ef þú værir virkilega svangur. 15. Segðu eitthvað skrýtið um þig: Ég fór einu sinni í sleik við rassgatið á þér. 16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik? Eflaust. Svo myndi ég bara fara í bíó á einhverja mynd sem mig langaði að sjá. 17. Getum við hist og bakað köku? Ef ég væri vikrilega svangur. 18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega? Jám ég bjó hana til. 19. Talaru eða hefuru talað illa um mig? Jebb ég hata þig. Þú ert allgjört fífl ! 20. Finnst þér ég góð manneskja? Nei ertu að grínast?!? Þú ert fífl !! 21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið? Ég myndi keyra á þig hringinn í kringum landið. 22. Finnst þér ég aðlaðandi? Stuðaranum á bílnum mínum finnst þú aðlaðandi. Og hnefanum á mér finnst andlitið á þér aðlaðandi. 23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari? Ég myndi sennilega breyta andlitinu á þér með hnefanum á mér. 24. Í hverju sefuru? Hnefinn á mér sefur í andlitinu á þér á næsta balli ef þú heldur ekki kjafti. 25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla? Hnefinn á mér kæmi í heimsókn og myndi chilla smá í andlitinu á þér af tilefnislausu. 26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér? Hnefinn á mér myndi koma á stefnumót við andlitið á þér ef þú myndir bjóða honum. 27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera? Þarf ég virkilega að koma með einn hnefa brandara í viðbót? 28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út? Ég skal setja þetta á andlitið á þér svo hnefinn minn geti fyllt þetta út.
P'z
»
18.01.2008 08:10:12 / Krissi
Ég ætla að koma með eitt svona vælukjóablogg í anda þessa bloggs hérna Ýtið Hér Mér finnst kominn tími á gömlu góðu bloggin aftur, þessi sem gerðu síðuna að því sem hún er í dag. Ég sakna þeirra tíma þegar maður gat kíkt á bloggsíðurnar og ælt úr hlátri yfir vitleysunni sem rann útúr fólkinu hérna. Þegar ég er að tala um gömlu góðu, þá er ég ekki að tala um þessi drepleiðinlegu sem Raggi bloggar. Þessi sem innihalda aðeins eina mynd og texta undir sem gæti allveg eins sagt "djöfull er þetta ömurlegt blogg". Blogg sem að Arnþór einn skilur vegna þess þetta er einhver einkahúmor. Ég vill fá blogg sem allir skilja og maður getur hlegið sig nokkrum kílóum léttari af, eða haft sterkar skoðanir á. Hvernig væri ef Rúnar myndi alltíeinu rífa sig frá hondunni sinni og setjast niður í fimm mínútur og skrifa nokkrar línur? eða jafnvel að Nói myndi hætta að flexa í skólanum sínum í bænum og skrifa eitthvað fróðlegt um bíla og píkur? Það er líka langt síðan maður hefur séð eitthvað frá Rikka hérna. Ég hvet hann til að leggja spilastokkinn frá sér og taka smástund í að deila með okkur visku sinni. Nei bara hugmynd sko. P.S : Þessir sem auglýsa hérna eiga von á reiðum Palla heim til sín á laugardagskveldi á nærbuxunum einum saman. - Kristmundur
»
30.12.2007 15:24:27 / Kjallari
Allar ljósmyndirnar eru komnar í lag hérna niðri vinstra megin þannig þið getið farið að njóta þeirra aftur kv. Herra Kjallari
»
27.12.2007 20:55:33 / egill
Innan raða Kjallarans er sérfræðingur Íslendinga í kvótakerfinu, íslenskum ríkisstjórnum, dönskum kvikmyndum og latínuheitum. Sá heitir Arnþór Tryggvason og er 19 ára rafvirki. Í tilefni nýs árs mun ætlar hann að svara spurningum sem brenna á lesendum varðandi þessa málaflokka.Hvers vegna féll Viðeyjarstjórnin? Er kvótakerfið frá helvíti? Er latína tungumál glæpamanna? Arnþór er með svarið.
»
24.12.2007 16:29:40 / Reifsneider
»
19.12.2007 20:49:35 / Arnthor
Sjitt það hefði nú einhver getað sagt mér þetta áður en ég lagði skóna á hilluna eftir busaárið! Ég meina þessi gaur var að skora 2,8 stig í leik! og ég var að skora svona 6-10 stig í leik eeen hefði ég áttað mig á því að það er hægt að spila fullur en ekki alltaf bara þunnur þá hefði ég kannski getað skorað svona 20-25 stig í leik  Fokk þessi frétt eyðilagði jólin fyrir mér bíð þá bara spenntur eftir djamminu á Áramótunum  KV. Sýran
»
19.12.2007 17:11:13 / Arnthor
22Looking for payday loan?
»
12.12.2007 17:33:28 / Kjallari
Jæja enn eitt árið eru blessuð jólin að ganga í garð jaaa… eins “blessuð” og þau verða. Desember byrjar bara svona eðlilega ég í prófum fólk sem vantar pening fyrir gjöfum að brjótast inní skóla og aðrir ganga vafn vel það langt að brenna alla 10 sportbílana sína, jú einfaldlega til þess að fá skilding út úr tryggingum fyrir jólagjöfinni. Eða hefur svokallaður Hrói Höttur gripið landsmenn að Íslendingar séu farnir stela frá þeim ríku á íslandi og sé einfaldlega að gefa þeim fátæku í útlöndum eftir að hafa hlustað á seiðandi tóna frá Halldóri Björgvinssyni sem syngur eitt lag í sjónvarpinu á meðan símanúmerið 900-9001 blikkar yfir andlitinu á honum, en ég vara ykkur við ,ég hef prufað, já ég hringdi inn en þeir tóku ekki númerið af andlitinu á honum svo ég hrindi aftur til að kvarta en um leið og það var svarað og ég helti mér yfir konuna voru aðeins 4 orð sem hún sagði !Takk fyrir þitt framtak! Og ef þú ert að lesa Tussa þá ertu dauð og já væri til í að fá 99 krónurnar mínar aftur. Jáhh úff gott að vera búinn að létta þessu af sér. Talandi um desember allir þessir vitleysingar sem að virðast bara poppa upp í desember og ég er ekki að tala um jólasveininn. T.d Þarna skíðakappinn Björgvin Björgvinsson, frá Dalvík hann virðist bara sona “detta” inn um leið og þessi mánuður. Hann var einmitt að keppa í dag, veit ekkert hvernig honum gekk, líklega jafn vel og mér gengur í fimleikum. Heyrðu dettur mér ekki allt í einu í hug alveg hópur af vitleysingjum sem að einmitt svona dúkka upp í Desember voða lítið að frétta af þeim svona venjulega en reyna að gera svona einn skandal í Desember á hverju ári jaa… ætli það sé ekki bara svona til að lýsa upp svartasta skammdegið hjá okkur hinum meðaljónunum. En að sjálfsögðu er ég að tala um Hvergerðinga. Jú núna einmitt í byrjun desember datt þeim í hug að hugsanlega væri kannski svolítið af sýklum og skít í Varmá og jú þeir heltu um 800 lítrum af klór í ánna. En viti menn þetta fór eitthvað aðeins úrskeiðis hjá þeim og var þetta nefnt “mengunarslys” í fréttum. Já sniðugir þessir Hvergerðingar. Í fyrra voru þeir með skemmtilega uppákomu sem að meir að segja dró okkur Selfyssinga inní þetta krummaskuð. Já svona smá innskot, ef þið vitið ekki hvað eða hvar Hveragerði er þá er það þarna einbýlishúsið og öll gróðurhúsin í kring…. Æj þið vitið þarna þar sem að vonda lyktin kemur alltaf inn í bílinn þegar að þið eruð á leiðinni til Reykjavíkur. Þið hljótið að þekkja staðinn núna. En já allavega þessi skemmtilegi atburður var á gamlársdag þegar að fólk var svona að klára að kaupa flugeldana sem þeir ætlaðu að skjóta uppí loft úti. Takið eftir allir Hvergerðingar ÚTI en já þeir voru einmitt með fræga flugeldasýningu innandyra. Já hvað verða þeir með næst, jahh ég bíð spenntur eldgos? En nefnið mig vitleysing eða ekki, ykkar er valið en hvernig sem því líður þá verð ég hér að ári liðinu. Þangað til næst kveðjur Palli og óskar ykkar öllum sem stiðstum desember. Björgvin Björgvinsson Hvergerðingar? ? Kv. Palli
»
08.12.2007 17:22:40 / Reifsneider
Afhverju prufum við aldrei að gera þetta ?
http://hrodmar.blog.is/blog/hrodmar/entry/379989/
btw. held að þessi gaur sé nett klikkaður í hausnum af lýsinguna
á honum að dæma. Hann hefur áhuga á bútasaum, erótískum kvikmyndum
og tælenskri tónlist.
Þegar maður er að reyna lesa undir próf þá lendir maður oft í
því að fara skoða ótrúlegustu bloggsíður..
Og já, Knútur á víst ársafmæli í
dag og óska ég honum því miður ekki til hamingju með þann árangur.
Ég hélt að það væii löngu búið að skjóta þennan björn.
»
02.12.2007 14:25:27 / Kjallari
Það kom að því! Svali gaurinn með sólgleraugun
ákvað að verða 19 ára í dag!
Til hamingju með það Krissi! Hann ætlar að
halda upp á það með því að þrífa sængina sína eftir gott djamm á
föstudag 
KV. Kjallarinn
»
01.12.2007 19:58:39 / Arnthor
»
29.11.2007 16:29:41 / Reifsneider
eða er ég svona ógeðslega leiðinlegur sessunautur ? Það er það sem ég hef lært af þessari önn  kv. reifs
»
25.11.2007 18:50:53 / Kjallari
Nú fer að koma að því ! Besti mánuður í heiminum. Desember! þessvegna setti ég upp þetta jólaþema. Ég er ánægður með að glataðasti mánuðurinn fer að líða undir lok. Ég skal segja ykkur soldið um nóvember. Tökum sem dæmi bíómyndir um hinn týpíska nörd sem dreymir um að vera hipp og kúl eins og aðalmaðurinn í skólanum, og riðlast á aðal klappstýrunni. Nördið tekur alltíeinu uppá því að dressa sig upp, og playa sig þvílíkt kúl, soldið eins og í nóvember eru komin upp jólaljós og skítakuldi sem á bara heima í desember. Jólahlaðborð eru haldin í nóvember, jafnvel á sama kvöldi og maður þarf bílstjóra á djammið, en allir bílstjórarnir eru á jólahlaðborði að troða í sig jólamat og drepast svo gjarnan áfengisdauða síðar um kvöldið. Og útiloka þar með möguleika þeirra sem fengu sér nokkra bjóra yfir leiknum, til að komast á djammið. Ég segi að við sniðgöngum þennan mánuð gjörsamlega. Sleppum því að klifra uppá þak í nóvember til þess að setja upp jólaseríur. Farið frekar á barinn til þess að steindrepast síðar um kvöldið, í staðinn fyrir að klæða sig í jakkaföt og setja á sig bindi og háma í sig einhvern mat sem á að vera étinn í desember. Niður með nóvember! - Krissi
»
Síður: 1 2 3 ... 34
|